Fotbolti.net
21.09.26 - 10:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Átta í bann í Bestu - Sex rauð spjöld

Átta í bann í Bestu - Sex rauð spjöld
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FImm leikmenn í Bestu deildinni eru komnir í leikbann eftir 24. umferðina sem spiluð var um helgina.

Sex rauð spjöld fóru á loft á laugardag; þrír leikmenn sáu rautt og þrír úr starfsliðum liðanna.
Fjórir Íslandsmeistarar taka út leikbann þegar Víkingur fær ÍA í heimsókn eftir landsleikjahlé. Sveinn Margeir Hauksson og Daníel Hafsteinsson sáu rautt utan vallar og þeir Aron Baldvin Þórðarson aðstoðarþjálfari og Hajrudin Cardaklija markmannsþjálfari sáu einnig rautt undir lok leiks gegn KR.

Hrafn Tómasson fékk sömuleiðis rautt spjald hjá KR og missir af leiknum gegn Fram. Sigurjón Rúnarsson, leikmaður Fram, verður í banni fyrir uppsöfnuð spjöld.

Yann Emmanuel Affi, leikmaður Þórs, verður í banni þegar ÍBV kemur í heimsókn til Akureyrar í uppgjöri botnliðanna og þá fékk liðsstjórinn Halldór Mar Einarsson rautt spjald þegar hiti myndaðist er flautað var til hálfleiks í Akureyrarslagnum.

25. umferðin í Bestu
laugardagur 10. október
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)
14:00 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Þór-ÍBV (VÍS völlurinn)
14:00 Stjarnan-KA (Samsungvöllurinn)

sunnudagur 11. október
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)
Hrafn fékk rautt gegn Víkingi.

Hrafn fékk rautt gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.