Fotbolti.net
21.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jöfnun á versta árangri Man Utd

Jöfnun á versta árangri Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Man Utd gerði jafntefli gegn Fulham í gær en Matheus Cunha jafnaði metin í lokin eftir að Lisandro Martinez hafði skorað mjög klaufalegt sjálfsmark.

Man Utd hefur aðeins unnið einn leik í deildinni og er með fimm stig í 12. sæti eftir fimm umferðir.
Þetta er jöfnun á versta árangri Man Utd í sögu úrvalsdeildarinnar en liðið náði aðeins í fimm stig eftir fimm umferðir tímabilið 2014/15. Það tímabil endaði liðið í 4. sæti.

Man Utd fær Tottenham í heimsókn í næstu umferð þann 10. október en Tottenham hefur varið mjög illa af stað og er á botninum með tvö stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.