21.09.26 - 08:58
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Þórðarson „í bölvuðu basli með heilsuna“

Guðjón Þórðarson stýrði Víkingi Ólafsvík.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Guðjón Þórðarson stýrði Víkingi Ólafsvík.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þjálfarinn reynslumikli Guðjón Þórðarson opnaði sig um heilsubrest í viðtali við Gunnlaug Jónsson í fréttum RÚV í gærkvöldi.
Guðjón er einn farsælasti þjálfari Íslands og náði áhugaverðum árangri með landsliðið. Þá stýrði hann Stoke og fleiri liðum á Englandi.
Guðjón er einn farsælasti þjálfari Íslands og náði áhugaverðum árangri með landsliðið. Þá stýrði hann Stoke og fleiri liðum á Englandi.
„Ég hef nú verið betri. Þetta eru erfiðir dagar, vikur og mánuðir. Það er tvennt sem hefur verið að hrjá mig. Annars vegar Parkinson sem ég greindist með árið 2023 og síðan hef ég verið með bakvandamál. Þetta leiðir niður í fætur og ég missi mátt," segir Guðjón sem hefur stutt sig við göngugrind og notast við hjólastól.
Guðjón, sem er 71 árs, segist vonast til þess að ná heilsunni á það stig að hann geti aftur farið að spila golf en hægt er að horfa á innslagið á heimasíðu RÚV.
Guðjón, sem er 71 árs, segist vonast til þess að ná heilsunni á það stig að hann geti aftur farið að spila golf en hægt er að horfa á innslagið á heimasíðu RÚV.
Heimild: RÚV
