Fotbolti.net
21.09.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Valverde meiddist illa í grannaslagnum

Valverde meiddist illa í grannaslagnum
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid hefur staðfest að miðjumaðurinn Federico Valverde hafi meiðst illa á ökkla í grannaslagnum gegn Atletico Madrid í gær.

Það var mikil reiði innan herbúða Real eftir leikinn en félagið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að dómarar leiksins hafi haft mikil áhrif á úrslitin en Atletico vann 2-1.
Real Madrid vildi meina að Cristian Romero og Lee Kang-in hafi átt að fá rautt spjald í fyrri hálfleik.

Kang-in steig á ökklann á Valverde undir lok fyrri hálfleiks en var ekki refsað fyrir það. Það er óljóst hversu alvarleg meiðsli Valverde eru en hann kláraði leikinn.

Valverde mun líklega ekki spila í æfingaleikjum Úrúgvæ gegn Japan, Suður-Kóreu og Indlandi sem framundan eru.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.