20.09.26 - 13:37
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum liðsfélagi Gylfa lenti undir valtara rétt fyrir leik

Andros Townsend

Mynd: EPA

Andros Townsend

Mynd: EPA
Englendingurinn Andros Townsend lenti í stórfurðulegu atviki fyrir leik PT Prachuap og Pattani í taílensku úrvalsdeildinni í gær, en það fór betur en á horfðist.
Townsend var að hita upp fyrir leikinn þegar starfsmaður ók smáum valtara yfir grasið til að ganga úr skugga um að völlurinn væri í góðu standi.
Englendingurinn bakkaði aðeins á sama tíma og ökumaðurinn virtist ekki vera með fulla athygli við aksturinn. Valtarinn fór á Townsend sem féll til jarðar og lenti undir honum.
Atvikið leit illa út í fyrstu, en Townsend stóð síðar upp og gat ekki byrjað leikinn af þessum sökum. Hann slapp þó vel og birti sjálfur myndband af atvikinu á Instagram.
Townsend lék um árabil í ensku úrvalsdeildinni og var meðal annars liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá bæði Everton og Tottenham.