Fotbolti.net
20.09.26 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson

Frétti af andláti vinar síns í beinni útsendingu

Peter Hermann, fyrrum aðstoðarþjálfari Bayern, er látinn

Peter Hermann, fyrrum aðstoðarþjálfari Bayern, er látinn

Canon

Mynd: EPA

Niko Kovac, þjálfari Borussia Dortmund, fékk hræðilegar fréttir eftir 1-0 sigur liðsins á Stuttgart í gær þegar honum var tilkynnt að fyrrum aðstoðarmaður hans væri látinn eftir langvarandi veikindi.
Peter Hermann er látinn, 74 ára að aldri. Hann var meðal annars aðstoðarmaður Niko Kovac hjá Bayern München og starfaði einnig undir stjórn Jupp Heynckes þegar liðið náði mögnuðum árangri.

Kovac fékk fréttirnar í miðju viðtali og átti erfitt með að koma orðum að tilfinningum sínum þar sem hann hélt aftur af tárunum.

„Maður verður nánast orðlaus. Ég reyndi að hafa samband við hann fyrir mánuði síðan, en nú get ég það ekki lengur. Því miður glímdi hann við ólæknandi sjúkdóm. Ég er ótrúlega leiður því góð manneskja hefur kvatt okkur,“ sagði Kovac.

Eftir leikinn vottaði hann fjölskyldu Hermanns síðan samúð sína á blaðamannafundi.

„Ég og bróðir minn vottum fjölskyldu Peter okkar dýpstu samúð. Frábær maður hefur kvatt okkur, ekki aðeins sem aðstoðarþjálfari í München heldur einnig frá þeim tíma þegar ég var leikmaður hjá Leverkusen. Þetta er mikið áfall,“ sagði Kovac enn fremur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.