21.09.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dowman gæti verið lánaður frá Arsenal

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að hinn 16 ára gamli Max Dowman gæti farið á lán frá félaginu.
Dowman spilaði sinn fyrsta leik á tímabilinu í 4-2 sigri á Ipswich í deildabikarnum á dögunum og skoraði tvennu.

„Við höfum ekki hlustað á nein tilboð því við vorum skýr með það að við vildum hafa hann í hópnum á undirbúningstímabilinu. Ég vill svo sjá hvar við stöndum. Við munum fara yfir málin á sex mánaða fresti, hvað sé best fyrir hann og taka svo rétta ákvörðun," sagði Arteta.
„Það fer eftir ýmsu, hvað hann þarf, hvar liðið er statt, mínútufjöldan hans, það sem hann færir okkur þegar hann fær þær mínútur. Margir hafa farið og staðið sig á þessum aldri. Ég var 17 ára þegar ég fór til PSG. Þetta fer eftir andrúmsloftinu, hversu mikla trú þjálfarinn hefur á þér, hvert hann fer. Nú er hann á frábærum stað. Hann er á góðum stað og höldum honum hér."