Fotbolti.net
05.03.13 - 14:45
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Liverpool á þrjá fulltrúa

Shinji Kagawa er í liðinu.

Shinji Kagawa er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Í gær lauk 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar þegar Manchester City vann vinnusigur gegn Aston Villa á útivelli.

Að vanda birtum við úrvalslið vikunnar en það er sótt frá FOX Sports að þessu sinni.


Markvörður: Pepe Reina (Liverpool)
Loksins loksins náði Reina að sýna sínar bestu hliðar í 4-0 sigrinum gegn Wigan. Þrátt fyrir að Liverpool endaði með að slátra leiknum 4-0 fékk Wigan fjölda marktilrauna.

Hægri bakvörður: Pablo Zabaleta (Manchester City)
Líklega besti leikmaður City á leiktíðinni. Var öryggið uppmálað gegn Aston Villa.

Miðvörður: Michael Dawson (Tottenham)
Arsenal hefði ekki tapað grannaslagnum ef liðið hefði haft Dawson sín megin.

Miðvörður: David Luiz (Chelsea)
Allt öðruvísi leikmaður en Michael Dawson en Luiz var öruggur og átti stóran þátt í markinu í 1-0 sigrinum gegn West Brom.

Vinstri bakvörður: Leighton Baines (Everton)
Baines hefur átt frábært tímabil og Reading átti í tómu basli með hann um liðna helgi.

Miðjumaður: Philippe Coutinho (Liverpool)
Miðað við byrjun hans á Anfield virðist þessi tvítugi leikmaður eiga framtíðina fyrir sér hjá félaginu.

Miðjumaður: Steven Pienaar (Everton)
Skoraði annað mark Everton í 3-1 sigri gegn Reading og það var ansi laglegt.

Miðjumaður: Park Ji-Sung (QPR)
Loksins lét Kóreumaðurinn almennilega að sér kveða hjá QPR. Sýndi magnaða vinnusama og lagði upp sigurmarkið gegn Southampton.

Sóknarmiðjumaður: Shinji Kagawa (Manchester United)
Það hefðu verið hávær mótmæli ef Kagawa hefði ekki verið valinn í liðið. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem hann er í liði umferðarinnar. Skoraði þrennu í 4-0 sigri á Norwich.

Sóknarmaður: Wayne Rooney (Manchester United)
Var frábær í sóknarleik United, hjálpaði Kagawa að ná þrennunni og skoraði svo sjálfur glæsilegt mark.

Sóknarmaður: Luis Suarez (Liverpool)
Öll þrjú mörk hans gegn Wigan sýndu hversu hæfileikaríkur hann er.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Philippe Coutinho.

Philippe Coutinho.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.