Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   sun 05. mars 2023 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Souness aldrei verið eins sigurviss - Keane og Neville hlógu
Graeme Souness.
Graeme Souness.
Mynd: Getty Images
Núna er hálftími í það að byrjunarliðin fyrir leik Liverpool og Manchester United verði opinberuð. Framundan er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni á milli þessara erkifjenda.

Teymi Sky Sports er fyrir löngu búið að koma sér fyrir á Anfield og hefur verið að hita upp fyrir leikinn síðustu klukkustundirnar.

Graeme Souness, fyrrum stjóri og leikmaður Liverpool, er í sérfræðingateyminu en hann er afar sigurviss fyrir leikinn á eftir - þrátt fyrir að Liverpool sé tíu stigum á eftir United í töflunni.

„Það er langt síðan ég hef verið eins viss um sigur Liverpool gegn United," sagði Souness.

„Ég held að menn muni mæta af krafti í þennan leik. Það er ekki auðvelt fyrir Man Utd að koma hingað."

Gary Neville og Roy Keane, fyrrum leikmenn Man Utd, voru með Souness í settinu og þeir gátu ekki annað en hlegið að þessum ummælum.


Athugasemdir
banner
banner
banner