17.09.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Óliver Sesar: Við förum þarna út og vinnum þetta
Auglýsing

Úr leiknum í gær

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Úr leiknum í gær

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
„Þetta er svekkjandi, mér fannst við miklu betri í leinum og með boltann allan tímann. Við gáfum þeim klaufaleg mörk," segir Óliver Sesar Bjarnason sem var besti maður Þórs að mati Fótbolta.net í leik liðsins gegn Zalgiris í gær.
Liðin mættust á VÍS vellinum í Evrópukeppni unglingaliða og fór svo að Zalgiris vann 3-4 útisigur.

Lestu um leikinn: Þór U19 3 - 4 Zalgiris U19
„Nei (mér finnst úrslitin ekki gefa rétta mynd af leiknum), mér fannst við miklu betri."
Óliver skoraði fyrsta mark Þórs í leiknum. Markið kom eftir fyrirgjöf frá hægri sem varnarmaður hreinsaði beint á Þórsarann.
„Ég fæ boltann bara í lappirnar, tek hann viðstöðulaust á lofti og set hann bara í hornið."
„Mér fannst geggjað að spila Evrópuleik, þetta gefur okkur klárlega helling að hafa fengið að spila þennan leik. Það var vel mætt, fullt af áhorfendum í stúkunni."
Seinni leikur liðanna fer fram 14. október í Litháen.
„Þetta er bullandi séns í seinni leiknum, við förum þarna út og vinnum þetta," segir Óliver.