Fotbolti.net
17.09.26 - 09:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fer þriðja tímabilið í röð upp úr Lengjudeildinni

Fer þriðja tímabilið í röð upp úr Lengjudeildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Emma Björt Arnarsdóttir náði þeim eftirtektarverða árangri um liðna helgi að fara í þriðja sinn á þremur árum upp úr Lengjudeildinni.

Emma Björt, sem uppalin er hjá FH og fædd 2006, hjálpaði Fram að fara upp úr deildinni 2024, lék í öllum leikjum liðsins og skoraði þrjú mörk.

Á síðasta tímabili kom hún á láni til Grindavíkur/Njarðvíkur í glugganum og hjálpaði liðinu á lokakaflanum.
Í ár var hún hjá KR og skoraði þrjú mörk í leikjunum átján. KR tryggði sér sæti í Bestu deildinni með sigri á Keflavík síðasta laugardag.

Í öll þrjú skiptin hefur liðið sem Emma spilar með endað í 2. sæti Lengjudeildarinnar.

Miðjumaðurinn á að baki fimm leiki fyrir yngri landsliðin og er samningsbundin KR út næsta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.