17.09.26 - 10:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alli Axels: Sáum að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura
Auglýsing

Aðalgeir og Ármann Pétur Ævarsson stýra liði Þórs.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

„Mér fannst við stýra þessum leik að mestu leyti, gefum þeim bara skíta mörk. Það er bara hálfleikur, þetta er langt frá því að vera búið. Við erum í bullandi séns áfram," segir Aðalgeir Axesson, þjálfari 2. flokks Þórs, eftir tap gegn Zalgiris í Evrópukeppni unglingaliða í gær.
Liðin mættust í fyrri leik einvígisins á VÍS vellinum og urðu lokatölur 3-4 fyrir gestina frá Litháen.
„Við sáum alveg að við eigum miklu meira en séns í þessa gaura. Við gefum þeim mörk á pirrandi tímum, minnkum í 1-2, erum með leikinn en fáum á okkur aftur skítamark. Náum svo að jafna í 3-3 og erum að fara vinna, en gefum aftur mark. Það er pirrandi, en svona er þetta. Við förum út og vinnum þá."

Lestu um leikinn: Þór U19 3 - 4 Zalgiris U19
„Upplifunin var geggjuð, búnir að bíða lengi eftir þessu eftir að við unnum Íslandsmótið í fyrra. Við erum heppnir, höfum spila fullt af stórum leikjum; úrslitaleikjum. Við höfum unnið Íslandsmeistaratitilinn í 4.-2. flokki og farið á mót erlendis saman. Við ættum því að vera vanir og þess vegna var smá þreytt að ná ekki að byrja þetta betur."
„Núna er plásturinn farinn af, við förum bara út til Litháen og keyrum á þá."
„Þeir munu pottþétt fara í það sama, negla fram, tefja og bíða eftir að eitthvað gerist. Við ætlum að fara út, með kassann úti og stýra leiknum. Það eina sem við getum gert er að vera hugrakkir og láta vaða á þetta."
Vakaris Berenta skoraði þrennu fyrir Zalgiris í leiknum. Er hann langbesti leikmaður í þeirra liði?
„Hann er drullugóður og þeir eru með nokkra helvíti góða, en samt ekki með ellefu mjög góða. Við þurfum að hafa gætur á honum í seinni leiknum."
„Við erum ekki að fara gefast upp núna, það er bara hálfleikur. Við undirbúum okkur fyrir þetta skemmtilega ævintýri í Litháen og erum ekkert hættir."
„Það var algjör snilld að sjá Þórsara fjölmenna á leikinn, umgjörðin var góð, allt upp á tíu," sagði þjálfarinn að lokum.
Seinni leikur liðanna fer fram í Litháen 14. október.