PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 16:21
Kári Snorrason
Leikmenn KR og Augnabliks gefa út lag - Benóný Breki pródúsent
Galdur skoraði gegn KA í síðustu umferð.
Galdur skoraði gegn KA í síðustu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Galdur Guðmundsson, leikmaður KR, ásamt þeim Róberti Laufdal Arnarssyni og Alexander Sævarssyni, leikmönnum Augnabliks, gáfu í dag út sitt fyrsta lag.

Saman myndar þríeykið bandið DÍSES. Lagið heitir HÁN (Hiti á Nínu) og vísar þar í Nínu bar sem er staddur í miðbæ Reykjavíkur.

Þá er Benóný Breki Andrésson, leikmaður Stockport á Englandi, skráður sem pródúsent lagsins. Benóný lék á dögunum sinn fyrsta landsleik er hann kom inn á gegn Japan.

Galdur hefur komið við sögu í fimm leikjum hjá KR á tímabilinu og skoraði í síðustu umferð gegn KA. Þá var Róbert Laufdal valinn bestur í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins eftir frammistöðu sína gegn Uppsveitum.

Enn eiga eftir að koma hlustendatölur á lagið en það hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlinum TikTok. Við fyrstu hlustun má búast við að hér sé kominn einn af sumarsmellunum.


Slapp
banner
banner
banner