26.07.26 - 10:49
Brynjar Ingi Erluson

Íhuga að hætta við að ráða Pirlo - „Yrðu alvarleg mistök að fá hann“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska fótboltasambandið er tvístígandi varðandi það að ráða Andrea Pirlo sem þjálfara landsliðsins vegna tengsla hans við rússneskt veðmálafyrirtæki. Þetta segja ítalskir miðlar í dag.
Sambandið hefur átt í viðræðum við Pirlo undanfarna daga og er hann talinn líklegasti kosturinn í starfið eins og sakir standa.
Ekkert hefur þó verið undirritað og tengsl hans við rússneska veðmálafyrirtækið Fonbet eru helsti þröskuldurinn í viðræðunum.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport er Pirlo sérstakur sendiherra Fonbet í Rússlandi. Samningurinn var gerður eftir að hann tók við Dubai City FC í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en félagið er í eigu rússneska auðjöfursins Sergey Lomakin sem á einnig hlut í Fonbet.
Markmiðið var að auka sýnileika veðmálafyrirtækisins á heimsvísu. Lögfræðingar Pirlo halda því hins vegar fram að samkomulagið sé einungis tengt starfi hans hjá Dubai City og að tengslunum við Fonbet verði sjálfkrafa slitið þegar samningi hans við félagið verður rift.
Ítalska sambandið ætlar að rannsaka málið betur og setjast niður með Pirlo til að fá botn í það áður en viðræðurnar geta haldið áfram.
Í augnablikinu er Giovanni Malagao, forseti ítalska sambandsins, tvístigandi með að ráða Pirlo vegna pólitískra áhrifa. Samband Ítalíu og Rússlands er ekki gott í kjölfar innrásar Rússa inn í Úkraínu árið 2022. Margir stjórnmálamenn á Ítalíu telja að það væri rangt að ráða Pirlo.
Pina Picierno, varaforseti Evrópuþingsins, segir að það væru stór mistök.
„Hann hefur fúslega og ítrekað lánað nafn sitt til að reyna að færa stjórn Pútíns í eðlilegt horf. Með því tók hann þátt í verkefnum sem áróðursvél Kremlar nýtti sér á meðan sprengjum rigndi yfir Úkraínu. Það yrðu alvarleg mistök að ráða Pirlo,“ sagði Picierno, og hafa margir tekið undir með henni, en það verður fróðlegt að sjá hver niðurstaðan verður í þessu máli.