PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   fös 05. júní 2026 15:58
Kári Snorrason
Mútaði Jóhanni Inga sem dró spjaldið til baka
Jóhann Ingi tók vel í grínið.
Jóhann Ingi tók vel í grínið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samfélagsmiðlastjarnan Ólafur Jóhann Steinsson vakti mikla kátínu í góðgerðarleik sem fór fram á dögunum er hann náði að múta Bestu deildar dómaranum Jóhanni Inga Jónssyni.

Ólafur Jóhann hafði farið í groddaralega tæklingu og fékk verðskuldað gult spjald að launum.

Í þann mund sem Jóhann Ingi var að lyfta spjaldinu náði Ólafur í fimm þúsund króna seðil, sem hann hafði geymt í sokknum, og rétti Jóhanni. Dómarinn tók vel í uppátækið hjá grínaranum geðuga og dró hann gula spjaldið til baka.

Um var að ræða góðgerðarleik UNICEF sem fór fram á þriðjudaginn og tókst að safna yfir 750 þúsund krónum.

Ólafur Jóhann birti myndskeið af atvikinu á samfélagsmiðlinum TikTok sem hefur vakið mikla athygli og fengið tæp þrjú þúsund læk.

@olafurjohann123

Persónulega var þetta aldrei gult spjald

? original sound - oli

Slapp