„Ekki erfið ákvörðun að fara í Val en mjög erfið ákvörðun að fara frá ÍBV"

Skrifar undir þriggja ára samning hjá Val.

Mynd: Valur

Ég hef varla farið í samningsviðræður á ferlinum, ÍBV hefur bara boðið mér samning í gegnum árin og ég samþykkt hann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur verið lykilmaður í liði ÍBV síðustu ár og reynst liðinu ansi traustur þjónn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék sína fyrstu leiki í efstu deild fyrir tíu árum síðan. Tímabilin í efstu deild eru sjö og þrjú í næstefstu deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri Árna tekur formlega við Val 1. nóvember. Eftir tvö samtöl við Sigurð Arnar var leikmaðurinn ákeðinn í að semja við Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það er geðveikt að sjá hvað Tómas er búinn að gera með sinn feril'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér finnst mjög erfitt að skilja ÍBV eftir á þessum stað, ekki ákjósanlegt að vera búinn að falla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skrifar undir þriggja ára samning hjá Val.

Mynd: Valur
„Það er mjög skrítið að vera ekki lengur leikmaður ÍBV. ÍBV er mitt lið, hef verið þar í 22 ár og það hefur alltaf verið mikill partur af sjálfsmyndinni að vera ÍBVari."
Eyjamaðurinn, sem er 27 ára varnarmaður, var með lausan samning og söðlaði um vegna fjölskylduaðstæðna og flutti á höfuðborgarsvæðið.
Sigurður hefur allan sinn feril leikið í Vestmannaeyjum fyrir utan þann tíma sem hann lék með liði Ohio State háskólans.
„Það var ekki erfið ákvörðun að fara í Val en það var mjög erfið ákvörðun að fara frá ÍBV. Það var kominn tími á að forgangsraða aðeins öðruvísi hjá mér. Fyrir tveimur árum var ég á smá tímamótum, var að útskrifast úr háskóla í Bandaríkjunum og var samningslaus. Kærastan mín fékk mjög spennandi tækifæri á að vinna úti í Bandaríkjunum. Ég kvatti hana til að taka það og sagði henni að ég myndi finna mér eitthvað nálægt henni. Svo fæ ég boð um spennandi vinnu í Vestmannaeyjum og skrifa undir tveggja ára samning við ÍBV. Það var kannski kominn tími á að setja sambandið meira í fyrsta sæti, koma mér aðeins nær henni og fá meiri tíma saman. Þegar sú ákvörðun var tekin var mjög spennandi þegar möguleikinn á að semja við Val stóð til boða."
Engir spennandi kostir á góðum stað í Bandaríkjunum
Varstu eitthvað að skoða hvort þú gætir flutt til Bandaríkjanna?
„Það hefur alveg komið upp, hefur verið smá áhugi í Bandaríkjunum. En það eru ekki mjög mörg lið miðað við stærð landsins og það var enginn spennandi möguleiki þegar kom að liðum sem voru nálægt henni á Austurströndinni. Það hefði því alltaf verið fjarsamband hvort sem er. Mig langaði því frekar vera heima, spila á Íslandi í góðu liði og geta haldið áfram að vinna, náð árangri í þeirri vinnu. Það var því mikið sem þurfti að vega og meta."
„Eins og staðan er núna á hún ár eftir af Visa og að óbreyttu er hún að fara flytja heim. Hún var kannski ekki spennt fyrir því að fara til Vestmannaeyja og því kannski ágætt að ég sé kominn til Reykjavíkur og við getum komið okkur fyrir þar."
Fær að halda vinnunni
Sigurður Arnar starfar sem verkefnastjóri hjá Laxey í Vestmannaeyjum og er fyrirtækið að byggja nýtt landeldi í Eyjum.
„Ég var svo heppinn að ég er með frábæra vinnuveitendur og þeir voru til í að láta reyna á það ég myndi vinna úr bænum. Ég er mjög þakklátur þeim fyrir það. Eina sem breytist er að ég verð ekki á svæðinu, heldur í fjarvinnu, og það er skemmtileg áskorun."
Sannfærður eftir tvö samtöl við Dóra
Voru aðrir kostir í stöðunni fyrir utan Val?
„Nei, í rauninni ekki. Ég var ekki að leita mér að liði þegar Valur heyrði í mér og mér fannst það spennandi. Þetta var raunverulegur áhugi, ég þurfti ekki að koma mér á framfæri eitthvað sérstaklega, og mér fannst það spennandi. Dóri Árna algjörlega sannfærði mig, eftir tvö spjöll við hann kom ekkert annað til greina hjá mér."
„Ég fékk kannski símtöl þegar ég var búinn að klára mína hluti gagnvart Val, en það var ekkert mikið."
Langar að svara fyrir tímabilið
Tímabilið hjá Val var undir væntingum, liðið endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar. Skynjar þú að það sé alveg ljóst að það eigi að stefna hærra?
„Ég skynja það að þeir séu svekktir með sitt tímabil alveg eins og ég er svekktur með mitt tímabil. Allir sem ég hef rætt við eru staðráðnir í því að gera mun betur. Það passar við það sem mig langar að gera, mig langar að gera betur, finnst ég þurfa að svara fyrir þetta sumar. Mér finnst mjög erfitt að skilja ÍBV eftir á þessum stað, ekki ákjósanlegt að vera búinn að falla. Mig langar að svara, þó að það sé ekki sem leikmaður ÍBV, þá langar mig að svara fyrir þetta á annan hátt, í Valstreyjunni."
ÍBV féll úr Bestu deildinni í ár eftir að hafa rétt misst af sæti í efri hluta deildarinnar tímabilið 2025.
Tómas er önnur saga
Hann er auðvitað þremur árum yngri, en hjálpar það þér að sjá hversu vel gekk hjá Tómasi Bent að koma inn í Valsliðið eftir að hafa verið í ÍBV?
„Kannski smá, en ekkert mikið. Tómas er önnur saga, eins og þú segir er hann svolítið yngri en ég og var kannski að fara í Val á öðrum forsendum en ég. Það er geðveikt að sjá hvað Tómas er búinn að gera með sinn feril, maður fylgist mikið með því og veit hvernig hann er að standa sig. Það er ekkert endilega eitthvað sem spilar inn í þegar kemur að minni ákvörðun. Ég er spenntur að fara í Val, líst vel á hópinn og vel á þjálfarateymið. Ég hlakka til að byrja og reyna ná einhverjum árangri."
Fyrstu samningsviðræður ferilsins
Hefur það verið nálægt því að gerast síðustu ár að þú færir í annað félag á Íslandi?
„Í gegnum árin hafa átt sér stað samtöl, en það hefur aldrei farið á það stig að verða að samningsviðræðum. Ég hef varla farið í samningsviðræður á ferlinum, ÍBV hefur bara boðið mér samning í gegnum árin og ég samþykkt hann. Núna var í fyrsta sinn sem ég fer í einhverjar viðræður."
„Mér hefur liðið vel í Eyjum. Aðstaðan þar er frábær, mikil tækifæri til að gera frábæra hluti og leikmenn hafa verkfæri til að bæta sig; frábær lyftingasalur, geggjaður klefi og gott þjálfarateymi. Mig hefur svo sem aldrei vantað neitt en núna eru aðstæður öðruvísi og ég tók þessa ákvörðun út frá mínu persónulega lífi," segir Sigurður Arnar.
Hann ræddi meira um ÍBV í seinni hluta viðtalsins sem birtur verður í kvöld.

Ég hef varla farið í samningsviðræður á ferlinum, ÍBV hefur bara boðið mér samning í gegnum árin og ég samþykkt hann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur verið lykilmaður í liði ÍBV síðustu ár og reynst liðinu ansi traustur þjónn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék sína fyrstu leiki í efstu deild fyrir tíu árum síðan. Tímabilin í efstu deild eru sjö og þrjú í næstefstu deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri Árna tekur formlega við Val 1. nóvember. Eftir tvö samtöl við Sigurð Arnar var leikmaðurinn ákeðinn í að semja við Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Það er geðveikt að sjá hvað Tómas er búinn að gera með sinn feril'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér finnst mjög erfitt að skilja ÍBV eftir á þessum stað, ekki ákjósanlegt að vera búinn að falla

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
