Fotbolti.net
29.10.26 - 21:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Enski deildabikarinn: Everton með öruggan sigur á Newcastle

Thierno Barry innsiglaði sigur Everton

Thierno Barry innsiglaði sigur Everton

Canon

Mynd: EPA

Everton 3 - 1 Newcastle
1-0 James Garner ('34 )
2-0 Hayden Hackney ('45 )
3-0 Thierno Barry ('69 )
3-1 Dan Burn ('88 )
Everton er komið í átta liða úrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Newcastle í kvöld.

Everton náði forystunni eftir rúmlega hálftíma leik þegar James Garner skoraði með skoti úr teignum eftir sendingu frá Hayden Hackney.

Hackney var síðan á skotskónum undir lok fyrri hálfleiks.

Newcastle sótti í sig veðrið í seinni hálfleik en Thierno Barry innsiglaði sigurinn.

Það var smá hasar undir lokin. Dan Burn klóraði í bakkann og ætlaði að ná í boltann svo leikurinn gæti farið fljótlega af stað aftur. Jordan Pickford kom hins vegar í veg fyrir það.

Burn og Pickford tókust aðeins og Joelinton bættist við og hann og James Tarkowski tókust á áður en fjöldi leikmanna bættist við. Þessu lauk nokkuð fljótlega og allir fjórir leikmennirnir fengu gult spjald.

Newcastle reyndi að minnka muninn enn frekar en Everton fór með sigur af hólmi og mætir Fleetwood í 8-liða úrslitum á útivelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.