Fotbolti.net
29.10.26 - 17:48
Elvar Geir Magnússon

Frans segir skilið við Keflavík eftir sextán tímabil

Frans Elvarsson kveður Keflavík.

Frans Elvarsson kveður Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frans Elvarsson, fyrirliði og leikjahæsti leikmaður í sögu Keflavíkur, hefur sagt skilið við félagið eftir að hafa verið hjá því í sextán tímabil.

Frans lék átta leiki með Keflavík í Bestu deildinni í sumar en liðið hafnaði í sjötta sæti.

„Eftir 16 tímabil hjá Keflavík er komið að leiðarlokum – í bili. Á þessum tíma hef ég upplifað margt, bæði góðar stundir og erfiðar, en fyrst og fremst kynnst frábæru fólki og eignast vini fyrir lífstíð," segir Frans við miðla félagsins.

„Ég er stoltur af því að hafa verið hluti af þessu félagi öll þessi ár og þakklátur öllum sem hafa verið með mér í þessari vegferð. Keflavík mun alltaf eiga sérstakan stað hjá mér.“

Frans, sem er 36 ára miðjumaður, gekk til liðs við Keflavík árið 2011 og hefur síðan verið einn af máttarstólpum liðsins.

Hann hefur verið fyrirliði undanfarin ár og verið þekktur fyrir baráttu, ósérhlífni og leiðtogahæfileika, innan vallar sem utan.
Tengsl Frans við félagið ná aftur til æskuáranna þegar hann fylgdist með Keflavík frá Höfn í Hornafirði og hélt sérstaklega upp á Guðmund Steinarsson og Eystein Húna Hauksson, sem hann átti síðar eftir að spila með og hafa sem þjálfara.

„Frans skilur eftir sig stór spor í sögu Keflavíkur og færir knattspyrnudeildin honum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt framlag og tryggð í gegnum árin," segir í tilkynningu Keflavíkur.


Í leik með Keflavík 2017.

Í leik með Keflavík 2017.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.