29.10.26 - 20:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
67. þrenna Ronaldo á ferlinum - Nálgast stóra áfangann


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo var í stuði í kvöld þegar Al-Nassr vann 5-3 sigur á Al-Kholood í sádi arabísku deildinni.
Staðan var 2-2 í hálfleik en þrenna frá Ronaldo í seinni hálfleik innsiglaði sigurinn. Sadio Mane skoraði eitt og lagði upp annað. Þá lagði Joao Felix upp fjögur mörk.
Staðan var 2-2 í hálfleik en þrenna frá Ronaldo í seinni hálfleik innsiglaði sigurinn. Sadio Mane skoraði eitt og lagði upp annað. Þá lagði Joao Felix upp fjögur mörk.
Þetta var 67. þrenna Ronaldo á ferlinum fyrir landslið og félagslið. Þá hefur hann skorað 985 mörk. Þúsund marka múrinn er því handan við hornið.
Al-Nassr er í 2. sæti með 28 stig, jafn mörg stig og topplið Al-Qadsiah en Al-Nassr á leik til góða.
Al-Nassr er í 2. sæti með 28 stig, jafn mörg stig og topplið Al-Qadsiah en Al-Nassr á leik til góða.
