29.10.26 - 15:00
Enski boltinn
Lykillinn fyrir dýra leikmenn Tottenham

Sandro Tonali og James Maddison.

Mynd: EPA

Sandro Tonali og James Maddison.

Mynd: EPA
Mateus Fernandes og Sandro Tonali áttu báðir góðan leik gegn Chelsea í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Þeir voru keyptir fyrir samanlagt um 180 milljónir punda til Tottenham síðasta sumar og hafa farið hægt af stað á tímabilinu.

„Loksins sá maður af hverju Tottenham var að borga allan þennan pening fyrir Sandro Tonali og Mateus Fernandes," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í Enski boltinn hlaðvarpinu.
En það er einn maður sem er lykillinn að því að þessir tveir leikmenn blómstri.
„Mér finnst James Maddison opna þessa miðju. Það gengur ekki að hafa Mateus Fernandes í tíunni. Maddison er þessi skapandi leikmaður," sagði Haraldur Örn Haraldsson í þættinum.
Vandamálið fyrir Tottenham er að Maddison hefur verið að glíma við meiðsli og fór meiddur af velli gegn Chelsea.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.