Fotbolti.net
29.10.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Calvert-Lewin orðaður við Man Utd

Calvert-Lewin orðaður við Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Man Utd er að skoða möguleika í fremstu víglínu fyrir janúargluggann en samkvæmt heimildum The Athletic er Dominic Calvert-Lewin, framherji Leeds, á óskalista Man Utd.

Þessi 29 ára gamli Englendingur hefur verið á radarnum hjá Man Utd um nokkurt skeið en Man Utd ætlar að reyna kanna hvort það sé möguleiki að næla í hann í janúar.
Það er þó talið ólíklegt að það verði að þessum félagaskiptum þar sem Leeds ætlar að reyna allt til að halda honum. Hann hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Leeds vill framlengja samning hans en hann gekk til liðs við félagið frá Everton á frjálsri sölu í fyrrasumar. Núgildandi samningur hans rennur út árið 2028.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.