Fotbolti.net
29.10.26 - 18:09
Elvar Geir Magnússon

Man Utd lélegasta félag Evrópu í leikmannaviðskiptum

Jadon Sancho.

Jadon Sancho.

Canon

Mynd: EPA

Óhætt er að segja að Manchester United líti illa út í nýrri skýrslu CIES Football Observatory. Rétt eins og í skýrslu síðasta árs sést að Manchester United er lélegasta félag Evrópu þegar kemur að leikmannaviðskiptum.

Félagið hefur tapað 334 milljónum á leikmannamarkaðnum síðustu fimm ár. Þegar allur heimurinn er skoðaður er það bara Al-Hilal í Sádi-Arabíu sem er meira í mínus.
Dæmi um slæm viðskipti United má sjá í kaupum Antony sem kom frá Ajax á 85 milljónir punda og var svo seldur fyrir 21,7 milljónir til Real Betis. Jadon Sancho var keyptur frá Borussia Dortmund á 73 milljónir punda en er nú félagslaus. Rasmus Höjlund var keyptur á 72 milljónir punda en seldur með 34 milljóna tapi

Andre Onana (47 milljónir punda), Mason Mount (60 m) og Joshua Zirkzee (36 m) eru áfram hjá félaginu en hafa ekki staðið undir væntingum.

Gengi Manchester United hefur verið langt undir væntingum og samkvæmt skýrslunni hafa leikmenn sem félagið hefur keypt fallið langmest í verði af öllum félögum ensku úrvalsdeildarinnar.


Omar Berrada og Sir Jim Ratcliffe.

Omar Berrada og Sir Jim Ratcliffe.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.