Fotbolti.net
29.10.26 - 10:48
Elvar Geir Magnússon

Allt bendir til þess að Jökull taki við Breiðabliki

Jökull Elísabetarson.

Jökull Elísabetarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðað við stuðla Epicbet bendir allt til þess að Jökull Ingason Elísabetarson verði næsti þjálfari Breiðabliks.

Miklar breytingar hafa verið á stuðlunum en nú hefur Jökull skyndilega tekið það afgerandi forystu að útlit sé fyrir að það sé allt að því frágengið að hann taki við.
Stuðullinn á Jökul er 1,40 en Arnar Grétarsson sem hefur verið talinn líklegastur er skyndilega með stuðulinn 8,00.

Jökull þekkir vel til í Kópavoginum, hann var leikmaður félagsins á sínum tíma og þjálfaði varalið Breiðabliks, Augnablik, áður en hann var ráðinn til Stjörnunnar, fyrst sem aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálfari. Hann var rekinn frá Stjörnunni í sumar eftir slappt gengi liðsins.
Allt bendir til þess að Jökull taki við Breiðabliki
Canon

Mynd: Epicbet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.