Mikael Anderson: Búinn að loka á Danina
Auglýsing

Mikael á æfingu á Kópavogsvelli í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael á æfingu á Kópavogsvelli í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hlakka ógeðslega mikið til. Við þurfum að vinna báða leikina til að eiga möguleika á að komast á EM og vonandi gerum við það,\" sagði U21 árs landsliðsmaðurinn Mikael Anderson við Fótbolta.net
Móðir Mikaels er frá Íslandi en faðir hans er frá Jamaíka. Sjálfur hefur hann búið í Danmörku frá ellefu ára aldri. Hann ákvað á síðasta ári að spila frekar með íslenska U21 landsliðinu heldur en því danska. Fyrr á árinu spilaði Mikael sinn fyrsta A-landsleik með Íslandi og hann er ánægður með þá ákvörðun sína.
„Ég er búinn að segja Dönum að ég ætla að spila fyrir Ísland og er búinn að loka á þá. Ég er 100% ánægður með þá ákvörðun.\"
Í sumar fór Mikael í hollensku úrvalsdeildina en Excelsior krækti þá í hann á láni frá Midtjylland. Mikael, sem er kant og miðjumaður, skoraði í tapi gegn Den Haag um síðustu helgi.
„Þetta er búið að byrja vel. Ég er búinn að leggja upp nokkur mörk og skoraði um síðustu helgi. Ég þarf að halda þessu áfram,\" sagði Mikael um fyrstu vikurnar í Hollandi.
„Þetta er hörkudeild og þetta eru góð lið sem vilja spila flottan fótbolta. Ég fíla það. Þetta er góður möguleiki fyrir mig að sýna mig og vonandi geri ég það,\" sagði Mikael.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.