Fotbolti.net
05.12.13 - 11:20
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska 2 - Suarez stjarna sýningarinnar

Luis Suarez skoraði flotta fernu í gær.

Luis Suarez skoraði flotta fernu í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Þar sem leikið var í miðri viku einnig þá eru tvö úrvalslið í enska boltanum að þessu sinni. Liðið að þessu sinni er tekið frá Goal.com.

Manchester United heldur áfram að fjarlægjast efstu liðin en Englandsmeistararnir töpuðu fyrir Everton sem á þrjá fulltrúa í úrvalsliðinu.


Við hefjum leik á Craven Cottage þar sem Hugo Lloris átti frábæran leik í marki Tottenham þegar liðið vann Fulham. Í hægri bakverðinum er Brasilíumaðurinn Rafael sem kom aftur í byrjunarlið Manchester United og stóð sig vel gegn Everton þó Englandsmeistararnir hafi beðið lægri hlut.

Við höldum okkur á Old Trafford. Bryan Oviedo er í vinstri bakverðinum en hann hefur staðið sig frábærlega í að fylla skarð Leighton Baines sem er á meiðslalistanum hjá Everton. Oviedo skoraði sigurmarkið gegn United seint í leiknum.

Í hjarta varnarinnar er Phil Jagielka, annar leikmaður Everton, en hann var sem klettur í öftustu línu. Ben Turner hjá Cardiff var í stuði þegar lið hans gerði jafntefli við Stoke.

Eden Hazard er að sjálfsögðu í úrvalsliðinu eftir að hafa skorað tvö mörk og lagt upp í 4-3 sigri Chelsea gegn Sunderland. Baráttan um sæti á miðjunnni var hörð en eftir sigur Arsenal á Hull eru þar Santi Cazorla og Mesut Özil.

Yaya Toure skoraði tvívegis í sigri Manchester City á West Brom og er í liðinu. Fremstu menn eru svo Romelu Lukaku sem fór illa með Nemanja Vidic á Old Trafford og Luis Suarez sem er stjarna sýningarinnar eftir að hafa skorað fjögur mörk í 5-1 sigri gegn Norwich.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.