Fotbolti.net
06.07.26 - 09:23
Elvar Geir Magnússon

Tuchel gagnrýnir dómarana og óskýrt regluverk

Alireza Faghani dómari.

Alireza Faghani dómari.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands gagnrýnir dómgæsluna á HM og segir að dómararnir sem þar starfa séu einfaldlega ekki nægilega góðir.

Dómararnir hafa fengið sína gagnrýni í undanförnum leikjum og Tuchel var ekki ánægður með Alireza Faghani dómara í 3-2 sigrinum gegn Mexíkó í nótt.
Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Allt það helsta úr sigri Englands í nótt

„Þetta er einfaldlega ekki nægilega gott. Dómararnir eru ekki nægilega góðir, fjórðu dómararnir eru ekki nægilega góðir," segir Tuchel.

Tuchel hikar ekki við að segja skoðanir sínar og gagnrýnir einnig atburðarásina í kringum leikbann Folarin Balogun sem var afturkallað. Balogun, sem spilar fyrir Bandaríkin, fékk rautt spjald en sleppur við leikbann.

„Hvar á þetta að byrja og hvar á þetta að enda? Getum við snúið við dómum eða getum við það ekki? Hvar er línan dregin er spurningin mín. Finnst okkur þetta ekki rautt eða hver er það sem ákveður það? Ég hef engin svör," segir Tuchel.
Tuchel gagnrýnir dómarana og óskýrt regluverk
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.