Fotbolti.net
25.08.26 - 10:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gylfi kominn fram úr Ásgeiri

Gylfi hefur spilað frábærlega með Víkingi

Gylfi hefur spilað frábærlega með Víkingi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víðir Sigurðsson vakti athygli á því í gær, þegar hann gerði upp 20. umferðina í Bestu deildinni, að Gylfi Þór Sigurðsson væri kominn fram úr Ásgeiri Sigurvinssyni þegar horft er í deildarleiki spilaða á ferlinum.
Víðir Sig: Aron og KR í metaham - Hallgrímur þriðji í sögunni - Margir með áfanga í 20. umferð
TENGT EFNI

Víðir Sig: Aron og KR í metaham - Hallgrímur þriðji í sögunni - Margir með áfanga í 20. umferð

Gylfi er nú orðinn níundi leikjahæsti knattspyrnumaður Íslandssögunnar. Hann lék sinn 482. deildaleik á ferlinum þegar Víkingur tók á móti Val og fór þar með fram úr Ásgeiri Sigurvinssyni sem situr eftir í tíunda sætinu.

Þegar Ásgeir lagði skóna á hilluna árið 1990 var hann leikjahæsti Íslendingurinn með 481 deildaleik á ferlinum.

Báðir eru þeir á meðal allra bestu leikmanna í sögu íslenska boltans.

Gylfi hefur spilað á Englandi, í Þýskalandi, Wales, Danmörku og á Íslandi. Hann hefur átt mjög gott sumar, skorað tólf mörk á tímabilinu og lagt upp fjögur í deild og Evrópu. Gylfi hefur í leikjunum 482 skorað 125 mörk.

Ásgeir lék 481 deildaleik fyrir ÍBV, Standard Liege, Bayern München og Stuttgart á árunum 1972 til 1990.
Ásgeir er einn allra besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið.

Ásgeir er einn allra besti fótboltamaður sem Ísland hefur alið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.