Fotbolti.net
25.08.26 - 21:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruno: Allir myndu segja það sama, þetta er ekki tennis

Bruno: Allir myndu segja það sama, þetta er ekki tennis
Canon

Mynd: PFA

Bruno Fernandes átti frábært tímabil í fyrra en hann lagði upp 21 mark sem er met yfir eitt tímabil. Hann bætti met Thierry Henry (2002-03) og Kevin de Bruyne (2019-20) sem lögðu upp 20 mörk.
Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna
TENGT EFNI

Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna

Fernandes var heiðraður í kvöld en leikmenn úrvalsdeildarinnar völdu hann besta leikmanninn á síðasta tímabili.

„Þetta er mikill heiður. Ég er þakklátur þeim sem kusu mig. Þetta var sérstakt tímabil fyrir mig persónulega," sagði Fernandes.

Hann var spurður að því hvað hann var að hugsa þegar hann nálgaðist metið.

„Ég hugsaði ekki mikið um það áður en þið (blaðamenn) fóruð að tala svona mikið um það. Þegar maður nálgaðist fór maður að hugsa um það. Ég held að framherjarnir hafi hugsað meira um þetta en ég, þeir vildu svo mikið skora til að færa mér stoðsendinguna að þeir gleymdu að hugsa um sinn leik," sagði Fernandes.

Þá var hann spurður að því hvort hann myndi skipta einstaklingsverðlaunum út fyrir liðsverðlaun.

„Það er augljóst. Allir myndu segja það sama. Það er það mikilvægasta í fótbolta. Þetta er ekki tennis þar sem við spilum fyrir okkur sjálfa. Þetta er fótbolti, við spilum fyrir liðið, félagið og stuðningsmennina. Það er ekkert sérstakara en það," sagði Fernandes.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.