25.08.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Sækja um að halda stórmót en eiga bara einn samþykktan leikvang

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Eþíópía hefur lagt fram formlega umsókn um að halda Afríkukeppnina (Afcon) árið 2028. Fótboltasamband Eþíópíu segir að ríkisstjórn landsins telji að það sé tilbúið að halda keppnina.
Margir furða sig á umsókninni og telja að Eþíópía sé ekki fært um að halda keppnina þar sem innviðirnir standist alls ekki kröfur. Alls taka 24 þjóðir þátt í mótinu.

Aðeins einn leikvangur Eþíópíu hefur fengið vottun fra afríska fótboltasambandinu en áætlað er að vígja nýjan þjóðarleikvang og íþróttamannavirki í höfuðborginni Addis Ababa.
Landslið Eþíópíu spilaði heimaleiki sína í undankeppni HM 2026 á hlutlausum völlum í Marokkó og Rúanda en hefur spilað í borginni Dire Dawa á þessu ári.
Áætlað er að Afríkukeppnin verði á fjögurra ára fresti eftir 2028.