25.08.26 - 22:43
Magnús Atlason
Rúnar: Við þurfum að klára þetta mót með stæl
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta tapaði 2-0 fyrir toppliði Aftureldingar í Mosfellsbænum í kvöld. Fótbolti.net náði Rúnari Páli Sigmundssyni í viðtal eftir leik.
"Mér líður bara ágætlega þannig séð, alltaf fúlt að tapa en það er bara eins og það er. Mér fannst fyrsta markið vera frekar ódýrt, náðum ekki að díla við fyrirgjöfina sem kom fyrir."
Það var korters kafli í seinni hálfleik þar sem Grótta hélt vel í boltann en þeim reyndust erfitt að finna glufur í vörn heimamanna.
"Við fengum ekki mikið af færum, það er bara þannig, þeir vörðust vel. Við þrýstum þvílíkt á þá og þeir voru í vandræðum með okkur í pressunni okkur og hvernig við vorum agressívir. En það skapaði ekkert fyrir okkur."
Bestu færi Gróttumanna í leiknum voru úr aukaspyrnum á fínum stöðum. "Ertu ósáttur með nýtinguna þar"
"Já að sjálfsögðu er ósáttur með það. Við hefðum getað gert betur í þessum stöðum. Við fengum fjóra góða möguleika úr aukaspyrnum til að gera betur en því miður gekk það ekki upp."
Gróttu var ekki spáð góðu gengi í sumar en Rúnari hefur tekist að svara þeim gagnrýnisröddum. "Hvernig líður þér eftir sumarið."
"Mér líður bara mjög vel með Gróttuliðið, og þetta er bara búið að ganga ágætlega. Við þurfum að klára þetta mót með stæl, við erum búnir að tapa of mörgum stigum núna í síðustu leikjum."
Sjá má viðtalið í heild sinni hér að ofan.