25.08.26 - 22:27
Magnús Atlason
Maggi sáttur: Nú erum við komnir í þessa stöðu og við erum búnir að koma okkur í hana sjálfir
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding situr á toppi Lengjudeildarinnar með fimm stiga forystu eftir 2-0 sigur á Gróttu. Fótbolti.net náði tali af Magnúsi Má Einarssyni þjálfara liðsins eftir leikinn.
"Frábær liðsheild í þessu hjá okkur í dag og hörkuleikur gegn mjög góðu liði Gróttu sem hafa staðið sig mjög vel í sumar."
Afturelding fékk fjölmargar hornspyrnur og seinna mark þeirra kom einmitt úr slíkri.
"Við fengum aragrúa af hornspyrnum og við erum búnir að vera öflugir í þessum atriðum í sumar og ég var mjög ánægður með þetta mark og virkilega vel gert hjá strákunum. Unnum fyrsta og annan bolta og þá er mark."
Í stöðunni 1-0 í seinni hálfleik héldu Gróttumenn vel í boltann og reyndu að finna leiðir í gegnum vörn Aftureldingar. "Varstu stressaður á einhverjum tímapunkti?"
"Já það getur allt gerst þegar það er eins marks munur það getur allt gerst í því en mér fannst liðið verjast frábærlega svo mér fannst þeir ekki vera að skapa sér mikið af færum."
Liðið getur tryggt sér titilinn um næstu helgi gegn Vestra en leikurinn er spilaður þegar bæjarhátíðin Á Túninu Heima er í fullum gangi. "Það hlýtur að vera markmiðið?"
"Já ekki spurning. Nú erum við komnir í þessa stöðu og við erum búnir að koma okkur í hana sjálfir með góðri frammistöðu í sumar og undanförnu og það verður gaman að takast á við Vestra."
Sjá má viðtalið í heild sinni hér að ofan.