Fotbolti.net
25.08.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Man Utd telur sig geta fengið Lewis-Skelly - Martinelli færist nær Arabíu

Myles Lewis-Skelly er stemningsmaður.

Myles Lewis-Skelly er stemningsmaður.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Manchester United vill leikmann Arsenal, Martinelli færist nær Arabíu og Manchester City er óvænt að reyna að fá Cody Gakpo. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakka dagsins.
Manchester United hefur trú á því að félagið geti sannfært Arsenal um að selja Englendinginn Myles Lewis-Skelly (19). Verðmiðinn hljóðar upp á meira en 50 milljónir punda og er enn helsti þröskuldurinn í viðræðunum um leikmanninn fjölhæfa. (Sun)

Gabriel Martinelli (25) færist nær Al-Hilal í Sádi-Arabíu en viðræður félagsins við Arsenal hafa gengið vel. Brasilíumaðurinn er ekki í áæltunum Mikel Arteta. (BBC)

Newcastle hefur náð munnlegu samkomulagi við Manchester City um kaup á spænska miðjumanninum Nico Gonzalez (24) fyrir 47 milljónir punda auk 3 milljóna í mögulegum viðbótargreiðslum. (Fabrizio Romano)

Newcastle hefur lagt fram tilboð að virði 34 milljóna punda í sóknarmanninn Matias Fernandez-Pardo (21) sem leikur með Lille og belgíska landsliðinu. (L'Equipe)

Manchester City hefur blandað sér í baráttuna um að fá hollenska sóknarleikmanninn Cody Gakpo (27) frá Liverpool en Tottenham vill einnig fá hann. (Soccer News NL)

Bournemouth hefur hafnað þremur tilboðum frá Chelsea í sumar í miðjumanninn Alex Scott (23). (The i)

Hull hefur lagt fram tilboð að virði 18 milljónum punda í sóknarmanninn Ilyas Ansah (21) sem leikur með Union Berlin og þýska U21-landsliðinu. Viðræður um langtímasamning eru langt á veg komnar. (Sky Þýskalandi)

AC Milan íhugar að reyna að fá marokkóska varnarmanninn Noussair Mazraoui (28) frá Manchester United undir lok félagaskiptagluggans. (CaughtOffside)

Ítalska félagið Monza mun bjóða Dele Alli (30), fyrrum miðjumanni Tottenham og enska landsliðsins, eins árs samning. Hann hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Como í september 2025. (Fichajes)
Gabriel Martinelli í leik með Brasilíu.

Gabriel Martinelli í leik með Brasilíu.

Canon

Mynd: EPA

Cody Gakpo.

Cody Gakpo.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.