Fotbolti.net
25.08.26 - 19:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nkunku mættur aftur til Leipzig (Staðfest)

Nkunku mættur aftur til Leipzig (Staðfest)
Canon

Mynd: RB Leipzig

Christopher Nkunku er kominn aftur til RB Leipzig en hann gengur til liðs við félagið frá AC Milan.

Þessi fyrrum sóknarmaður Chelsea fer á láni með kaupmöguleika.
Ruben Amorim, stjóri Milan, tjáði Nkunku fyrr í sumar að hann væri ekki í áætlunum portúgalska stjórans.

Nkunku er 28 ára gamall Frakki. Hann var hjá Leipzig frá 2018-2023. Hann gekk síðan til liðs við Chelsea en samdi við Milan í fyrrasumar.

Hann kom við sögu í 35 leikjum með Milan á síðustu leiktíð og skoraði átta mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.