26.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ipswich að ná samkomulagi við Leverkusen

Granit Xhaka og Exequiel Palacios

Mynd: EPA

Granit Xhaka og Exequiel Palacios

Mynd: EPA
Ipswich er nálægt því að ná samkomulagi við Leverkusen um kaup á Exequiel Palacios. David Ornstein hjá The Athletic greinir frá.
Enska félagið hefur lagt fram tilboð sem hljóðar upp á 27.5 milljónir evra og hefur boðið honum fjögurra ára samning.
Enska félagið hefur lagt fram tilboð sem hljóðar upp á 27.5 milljónir evra og hefur boðið honum fjögurra ára samning.
Palacios er 27 ára gamall argentískur landsliðsmaður og verður fyrsti heimsmeistarinn til að spila fyrir Ipswich. Miðjumaðurinn var í landsliðshópi Argentínu á HM 2022 þegar liðið vann og nú í sumar þegar liðið fékk silfur.
Ipswich bauð 15 milljónir evra í hann fyrr í þessum mánuði en því tilboði var hafnað.
Ipswich bauð 15 milljónir evra í hann fyrr í þessum mánuði en því tilboði var hafnað.
