25.08.26 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna

Mynd: PFA

Mynd: PFA
Verðlaunahátið leikmannasamtakanna á Englandi fór fram í kvöld. Leikmaður ársins á síðustu leiktíð var valinn, ungi leikmaður ársins og lið ársins.
Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, var valinn leikmaður ársins. Hann vann David Raya, Declan Rice, Erling Haaland, Gabriel Magalhaes og Rayan Cherki í baráttunni.

Fernandes átti stórkostlegt tímabil en hann lagði upp 21 mark. Það er met á einu tímabili í úrvalsdeildinni. Þá skoraði hann níu mörk.
Þá var NIco O'Reilly, leikmaður Man City, valinn ungi leikmaður ársins. Það eru fimm leikmenn frá Englandsmeisturum Arsenal í liði ársins og fjórir frá Man City.
Lið ársins:
Markvörður: David Raya (Arsenal). Varnarmenn: Gabriel Magalhães (Arsenal), Nico O'Reilly (Manchester City), William Saliba (Arsenal), Jurriën Timber (Arsenal). Miðjumenn: Bruno Fernandes (Manchester United), Declan Rice (Arsenal), Rayan Cherki (Manchester City). Sóknarmenn: Erling Haaland (Manchester City), Antoine Semenyo (Manchester City), Igor Thiago (Brentford).

The PFA Premier League Team of the Year ????
— PFA (@PFA) August 25, 2026
Voted for by the players. pic.twitter.com/8i4WNR5a8y