Fotbolti.net
06.10.18 - 16:05
Hafliði Breiðfjörð

Einar Páll: Á ekki að skipta um þjálfarateymi eins og undirföt

Auglýsing
Einar Páll við ráðninguna á Kristjáni í dag.

Einar Páll við ráðninguna á Kristjáni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Við vorum búin að hafa það þjálfarateymi sem fór frá núna síðustu fimm árin og nú hefst nýtt tímabil. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við skiptum um þjálfara en við höfum lagt áherslu á stöðugleika í þessu félagi," sagði Einar Páll Tamimi formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Stjörnunni í dag eftir að félagið réði Kristján Guðmundsson til að taka við af Ólafi Þór Guðbjörnssyni sem þjálfari liðsins.
„Menn eiga ekki að skipta um þjálfarateymi eins og undirföt og við erum trúir þeirri stefnu. Við vonum að Kristján verði með okkur að minnsta kosti í þessi tvö ár og ef til vill eitthvað lengur," bætti hann við og aðspurður hvort verið væri að horfa til lengri tíma svaraði hann:

„Við erum að byggja upp í Garðabæ, erum með lið sem er frekar ungt og erum með mikið af ungum og efnilegum leikmönnum á leiðinni upp. Þessir leikmenn eru ekki bara ungir heldur líka góðir. Við stefnum á að sækja okkur titla eigi síðar en strax en það verður ekki gert á öðrum forsendum en að við séum að byggja upp sterkt lið til lengri tíma."

Nánar er rætt Við Einar Pál í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir hann ráðninguna á Kristjáni meðal annars.

„Við skoðuðum einfaldlega þá kosti sem voru lausir á þeim tímabunkti sem við fórum að leita að þjálfara. Menn sem voru án verkefna og höfðu að okkar mati eitthvað til málanna að leggja. Það voru nokkrir góðir kostir en Kristján var fyrsti kostur og það er mikið ánægjuefni að við skyldum ná saman um að hefja þessa vegferð," sagði Einar Páll um ráðninguna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.