Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 06. október 2022 21:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vill sjá Ronaldo í byrjunarliðinu gegn Everton - „Varnarmenn skíthræddir"
Mynd: EPA
Paul Scholes veðjar á að Cristiano Ronaldo verði í byrjunarliði Manchester United gegn Everton um helgina.

„Miðað við frammistöðu varmannana (Rashford og Martial) ásamt Ronaldo. Ronaldo mun ekki geta spilað marga leiki en ég held að leikurinn gegn Everton verði einn þeirra. Það er ekki stór völlur svo hann þarf ekki að spretta út um allt," sagði Scholes.

Hann vill sjá Rashford og Martial í liðinu með Ronaldo.

„Ég veit að Antony skoraði um síðustu helgi en Rashford og Martial eru hættulegri, þeir eru snöggir og varnarmenn eru skíthræddir við þá," sagði Scholes.

„Þetta var ekki kvöldið hans Ronaldo en þetta verður ekki svona lengi. Ef hann fær færi á sunnudaginn mun hann skora."

Leikur Everton og Manchester United hefst kl 18 á sunnudaginn.


Athugasemdir
banner
banner