Fotbolti.net
19.10.26 - 08:39
Fótbolti.net

60% telja Arnar ekki hafa tekið rétt á agabrotunum

60% telja Arnar ekki hafa tekið rétt á agabrotunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Meirihluti lesenda Fótbolta.net telur að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari hafi ekki tekið með réttum hætti á agabrotum sem urðu innan íslenska landsliðshópsins í síðasta glugga.

Tæplega 1.500 manns tóku þátt í könnuninni og segja 60% að hann hafi ekki tekið rétt á málum en 40% eru ánægðir með viðbrögð hans.
Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans
TENGT EFNI

Arnar um agabrotin: Undirbúningurinn fór til fjandans

Ónafngreindir leikmenn landsliðsins fengu sér áfengi og fóru á pókerklúbb fyrir leik gegn Eistlandi. Arnar vill ekki gefa upp hvaða leikmenn það voru.

„Þetta er eitthvað sem er óásættanlegt," sagði Arnar í viðtali við Vísi fyrir helgi en hann segir að þetta mál sé að baki. Það hafi verið tekið á því innan liðsins og sambandsins. Hann telur að skömm þeirra leikmanna sem brutu agareglur sé nægileg refsing.

Það styttist í landsleiki gegn Búlgaríu og Lúxemborg, síðustu leikina í riðli C-deildar Þjóðadeildarinnar. Arnar fékk spurninguna: Er þessu máli þá lokið frá þínum bæjardyrum? Þetta er ekki að fara að hafa áhrif á landsliðsval þitt fyrir næsta glugga?

„Nei, alls ekki. Það eru bara engir eftirmálar af þessu lengur. Það er búið að díla við þetta, það er búið að loka þessu máli og ég er mjög ánægður með það hvernig þessu máli var lokað," svaraði Arnar.
60% telja Arnar ekki hafa tekið rétt á agabrotunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.