18.10.26 - 18:52
Elvar Geir Magnússon
Kiddi Jóns kveður Breiðablik - Hefði viljað halda áfram

Kristinn segir mögulegt að skórnir fari á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Jónsson segir mögulegt að skórnir fari á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn er uppalinn Bliki og hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla sem leikmaður félagsins.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kristinn Jónsson hefur ritað færslu á Facebook þar sem hann tilkynnir að hann hætti með Breiðabliki að tímabilinu loknu. Mögulega fara skórnir á hilluna.
„Ég hafði alltaf einhvern veginn ímyndað mér að þessi ákvörðun yrði mín, en hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér," segir Kristinn, sem er 36 ára vinstri bakvörður, í færslunni og hefði greinilega viljað fá framlengingu á samningi.
„Hvort skórnir fari á hilluna eða ekki á eftir að koma í ljós, en ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni."
Kristinn er uppalinn Bliki og hefur unnið tvo Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla sem leikmaður félagsins. Hann hefur spilað tólf deildarleiki á þessu tímabili og skorað eitt mark.

Færsla Kristins:
Takk fyrir mig, Breiðablik
Það eru tæp 20 ár síðan ég spilaði minn fyrsta leik með meistaraflokki Breiðabliks. Nú er því miður komið að kveðjustund. Ég hafði alltaf einhvern veginn ímyndað mér að þessi ákvörðun yrði mín, en hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér.
Mér finnst ég enn hafa ýmislegt að gefa og hefði viljað halda áfram að leggja mitt af mörkum, bæði á vellinum og með því að miðla reynslunni til yngri strákanna sem eru að taka við. Þótt ég hefði kosið annað framhald er ég stoltur og þakklátur fyrir allt sem ég hef fengið að upplifa með félaginu.
Það hefur verið sérstakt að fá að vera hluti af svo mörgum tímamótum í sögu Breiðabliks: fyrsta bikarmeistaratitlinum, fyrsta Evrópuleiknum, fyrsta Evrópusigrinum og fyrsta Íslandsmeistaratitlinum. Ég var með þegar Breiðablik vann sitt fyrsta Evrópueinvígi og komst í fyrsta sinn áfram úr annarri umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Að skora í fyrsta sigri Breiðabliks í deildakeppni Sambandsdeildarinnar er líka minning sem ég mun alltaf halda upp á.
Ég er jafnframt stoltur af því að vera fyrsti og enn sem komið er eini leikmaður Breiðabliks sem hefur orðið stoðsendingahæstur í efstu deild, og sá eini sem lék í báðum úrslitaleikjunum sem færðu félaginu bikarmeistaratitil. Tveir Íslandsmeistaratitlar, tveir bikarmeistaratitlar og ótal góðar stundir.
Það sem stendur þó mest upp úr er fólkið. Takk til allra samherja, þjálfara, starfsfólks, sjálfboðaliða og stuðningsmanna fyrir tímann saman og allt sem við höfum upplifað. Ég tek með mér fullt af góðum minningum og vináttu sem mun endast alla ævi.
Núna er bara að njóta síðustu daganna með liðinu. Hvort skórnir fari á hilluna eða ekki á eftir að koma í ljós, en ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni.