18.10.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sunderland í brasi - „Erum hrokafullir"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sunderland er aðeins með fjögur stig í næst neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir tap gegn Bournemouth í dag.
Liðið gerði stórkostlega hluti á síðustu leiktíð og hafnaði í 7. sæti. Varnarmaðurinn Nordi Mukiele er alls ekki sáttur með stöðuna.

„Eigum við skiliið að vera þar sem við erum í dag? Já, klárlega. Af hverju, kannski af því við urðum hrokafullir, það tel ég," sagði Mukiele.
„Ég vil ekki segja að þetta sé vörninni eða sókninni að kenna. Þetta er okkur öllum að kenna. Við þurfum að fara aftur í grunnatriðin, eins og við vorum á síðasta tímabili. Við þurfum kannski að hætta spá í síðasta tímabili því að nú er nýtt tímabil og öll liðin eru betri. Stuðningsmenn og borgin á þetta ekki skilið, ég mun ekki sofa vel því ég þoli ekki að tapa."