18.10.26 - 16:04
Brynjar Ingi Erluson
Carrick: Þetta var eins og nýtt upphaf

Michael Carrick

Mynd: EPA

Bruno Fernandes hefur verið arfaslakur á tímabilinu

Mynd: EPA

Michael Carrick

Mynd: EPA
Michael Carrick, stjóri Manchester United, fannst frammistaða liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Leeds United vera eins og nýtt upphaf fyrir hann og liðið.

TENGT EFNI
England: Man Utd tapaði stigum á Elland Road - Brighton á svakalegri siglingu
Carrick var nokkuð sáttur við frammistöðu sinna manna og sagðist hafa rætt við leikmennina fyrir leikinn um sögu félaganna tveggja og mikilvægi viðureignarinnar.
„Ég ræddi við strákana í morgun um sögu þessara félaga og hversu mikla þýðingu þessi leikur hefur.“
„Þetta var erfiður leikur. Ég ætla ekki að hrósa okkur um of því við unnum ekki, en að mörgu leyti fannst mér þetta vera nýtt upphaf. Strákarnir eru staðráðnir í að standa sig vel,“ sagði Carrick.
Þótt hann hefði viljað fá meira út úr leiknum sá hann ýmis jákvæð teikn og telur að liðið geti byggt á frammistöðunni.
„Við ætlum ekki að láta eins og allt hafi verið frábært, en stundum lendir maður í erfiðleikum og þá þarf að finna leiðir til að vinna sig út úr þeim. Við þurfum að sýna meiri stöðugleika og halda áfram að gera réttu hlutina. Ég er sannfærður um að við getum komist á gott skrið,“ sagði hann enn fremur.
Bruno Fernandes, fyrirliði United, hefur sætt gagnrýni fyrir frammistöðu sína á tímabilinu, en Carrick hefur engar áhyggjur af honum og segir hlutverk hans í liðinu lítið hafa breyst.
„Í dag spilaði hann að mestu leyti í sömu stöðu og hann hefur gert stærstan hluta tímabilsins, á miðjunni, þannig að það var ekki mikil breyting. Hann var í aðeins öðruvísi hlutverki í miðri viku, en annars hefur þetta verið nokkurn veginn eins.“
„Hann er mikilvægur hluti af liðinu, hefur verið það lengi og það mun ekkert breytast,“ sagði Carrick í lokin.