Fotbolti.net
19.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skoraði ótrúlegt mark - „Vissi ekki hvað ég átti að gera"

Skoraði ótrúlegt mark - „Vissi ekki hvað ég átti að gera"
Canon

Mynd: EPA

Diego Gomez, leikmaður Brighton, skoraði magnað mark þegar Brighton valtaði yfir Crystal Palace 5-0 í úrvalsdeildinni í gær.

Gomez fékk boltann á miðjunni og var ekki lengi að fara í skotið og skoraði yfir allan völlinn
Sjáðu markið: Brighton skoraði Beckham mark frá miðju
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Brighton skoraði Beckham mark frá miðju

„Þegar ég fékk boltann vissi ég að markmaðurinn var aðeins út úr markinu. Þegar ég skoraði vissi ég ekki hvert ég átti að hlaupa eða hvað ég ætti að gera. Ég var mjög ánægður," sagði Gomez.

Brighton hefur verið á ótrúlegri siglingu og situr í 3. sæti deildarinnar. Liðið hefur skorað flest mörk í deildinni eða 23 talsins og fengið á sig fæst, ásamt Arsenal, eða fimm talsins í sjö leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.