18.10.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjórar íslenskar mætast í stórleik í Texas

Berglind Hlynsdóttir í leik með LSU

Mynd: Stephen Bayog/LSU Athletics

Brynja Rán Knudsen

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind Hlynsdóttir í leik með LSU

Mynd: Stephen Bayog/LSU Athletics

Fjórir íslenskir leikmenn mætast í kvöld í bandaríska kvennaháskólaboltanum þegar Texas A&M tekur á móti LSU í College Station í Texas.
Brynja Rán Knudsen, 19 ára miðjumaður úr Þrótti, leikur með Texas A&M, en hjá LSU eru þrjár íslenskar: markvörðurinn Auður Scheving (úr Stjörnunni), bakvörðurinn Rakel Sigurðardóttir (úr Víkingi R.) og framherjinn Berglind Hlynsdóttir (úr FH).
Liðin leika bæði í SEC-deildinni, einni sterkustu háskóladeild Bandaríkjanna, þar sem 16 lið berjast um 12 sæti í úrslitakeppni deildarinnar sem fer fram í Pensacola í Flórída 8.–15. nóvember.
Leikurinn skiptir máli fyrir bæði lið. LSU er í 12. sæti deildarinnar en Texas A&M er í 15. sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Auður hefur staðið í marki LSU í 14 af 15 leikjum liðsins í haust, Berglind hefur skorað þrjú mörk á sínu fyrsta tímabili og Rakel hefur komið við sögu í tíu leikjum. Brynja, sem einnig er á fyrsta ári, hefur leikið tíu leiki fyrir Texas A&M, byrjað tvo og lagt upp tvö mörk.
Búist er við fjölmenni í dag í College Station en meðalfjöldi áhorfenda er um 1700 manns hjá Texas A&M og mest voru 3800 manns á heimaleik í lok ágúst. Leikurinn hefst klukkan 19 að íslenskum tíma og er sýndur í beinni útsendingu um öll Bandaríkin á SEC Network.