19.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pirraður og sár yfir því að missa af stórleikjum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Eric Garcia, varnarmaður Barcelona, verður frá næstu vikurnar eftir að hafa orðið fyrir vöðvameiðslum í 5-2 sigri á Betis um helgina.
Draumadagur varð að martröð þegar hann þurfti að fara af velli undir lokin en hann skoraði sitt fyrsta mark í leiknum.

Garcia mun missa af mikilvægum leikjum en næstu tveir leikir liðsins eru gegn PSG í Meistaradeildinni og Real Madrid í spænsku deildinni.
„Gærdagurinn (laugardagur) var frábær fyrir liðið. En svona er fótboltinn, nú þarf ég að hvíla í nokkra daga þegar leikirnir sem sem við viljum allir spila eru að bresta á," sagði Garcia.
„Það pirrar og særir mig að geta ekki verið með en ég mun leggja hart á mig að koma eins fljótt og hægt er til baka."