18.10.26 - 21:29
Elvar Geir Magnússon
Dauðskammast sín eftir skellinn í Brighton

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace.

Mynd: EPA
Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, segist skammast sín vegna frammistöðu liðsins í 5-0 tapi gegn Brighton. Hann kveðst ekki vita hvort hann fái þolinmæði til að bjarga starfi sínu.

TENGT EFNI
England: Man Utd tapaði stigum á Elland Road - Brighton á svakalegri siglingu
„Þetta er mér að kenna því ég er þjálfarinn, ég sá um að gera menn tilbúna og undirbjó leikinn. Við spiluðum svo illa að þetta er mér að kenna,“ segir Frakkinn Sage sem tók við stjórn Palace í sumar.
„Það er erfitt að draga þetta saman því það er svo margt neikvætt. Við byrjuðum virkilega illa. Það er alls ekki eðlilegt að fá á sig þrjú mörk eftir níu mínútur í svona leik. Ég á mikið verk fyrir höndum því ég verð að breyta þessu.“
Aðspurður hvort hann fengi tíma til að rétta úr kútnum hjá Palace svaraði hann: „Ég veit það ekki.“
Undir stjórn Oliver Glasner vann Palace titla en Sage hefur hins vegar átt erfiða byrjun hjá Palace. Liðið situr í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tvo sigra í sjö leikjum.
„Ég vil biðja stuðningsmennina afsökunar. Ég veit hversu mikilvægt þetta er fyrir þá. Við sýndum hins vegar ekki í dag að þetta skipti okkur líka miklu máli. Það er bara ein tilfinning sem maður finnur núna: Skömm. Við sýndum okkar verstu hlið," segir Sage.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +12 | 21 |
| 2 | Arsenal | 7 | +6 | 18 |
| 3 | Brighton | 7 | +18 | 16 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 7 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 8 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 9 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 7 | -4 | 9 |
| 11 | Newcastle | 7 | -4 | 8 |
| 12 | Aston Villa | 7 | -4 | 8 |
| 13 | Man Utd | 7 | 0 | 7 |
| 14 | Crystal Palace | 7 | -8 | 7 |
| 15 | Bournemouth | 7 | -4 | 6 |
| 16 | Coventry | 6 | -6 | 6 |
| 17 | Fulham | 7 | -3 | 5 |
| 18 | Nott. Forest | 7 | -4 | 5 |
| 19 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |
| 20 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |