Fotbolti.net
18.10.26 - 09:37
Brynjar Ingi Erluson

Vill yfirgefa Arsenal - Liverpool horfir til Dortmund

Viktor Gyökeres vill fara frá Arsenal

Viktor Gyökeres vill fara frá Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins og þar er af nógu að taka, enda margir áhugaverðir molar á ferðinni.
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres (28) vill yfirgefa Arsenal í janúarglugganum vegna þess hversu lítið hann hefur fengið að spila á tímabilinu. (TeamTalk)

Liverpool hefur áhuga á Felix Nmecha (26), miðjumanni Borussia Dortmund og þýska landsliðsins, ef félaginu tekst ekki að fá Alex Scott (23) frá Bournemouth. (CaughtOffside)

AC Milan ætlar að bjóða franska miðjumanninum Adrien Rabiot (31) nýjan samning til ársins 2030, en félagið er afar ánægt með frammistöðu hans í upphafi tímabilsins. (Corriere dello Sport)

Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vill styrkja hópinn í janúar með tveimur leikmönnum Barcelona, en hann hefur augastað á franska varnarmanninum Jules Kounde (27) og hollenska miðjumanninum Frenkie de Jong (29). (Football365)

Chelsea hefur einnig áhuga á hinum unga og efnilega Mathis Albert (17), sem leikur með Borussia Dortmund. (FootballTransfers)

Wesley (23), leikmaður Roma og brasilíska landsliðsins, er á óskalista Arsenal, Manchester United og Newcastle. (Sport Witness)

Solly March (32), fyrrum leikmaður Brighton, er við það að ganga til liðs við Charlton í ensku B-deildinni. Englendingurinn hefur verið án félags síðan samningur hans við Brighton rann út í sumar. (Football Insider)

Arsenal og Chelsea hafa bæði áhuga á sænska undrabarninu Oliver Månsson (17), sem leikur með Gautaborg í heimalandinu. (TeamTalk)

Arsenal og Manchester United hafa bæði útilokað að fá til sín Maxi Araujo (26), vinstri bakvörð Sporting og úrúgvæska landsliðsins. (Sport Witness)

Chelsea er langt komið í viðræðum við Strasbourg um marokkóska leikmanninn Gessime Yassine (20). (Ekrem Konur)
Felix Nmecha til Liverpool?

Felix Nmecha til Liverpool?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.