Fotbolti.net
07.05.13 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Margir úr neðri hlutanum

Gabriel Agbonlahor.

Gabriel Agbonlahor.

Canon

Mynd: Getty Images

Gabriel Agbonlahor er leikmaður helgarinna í enska boltanum og fær hann félagsskap tíu góðra manna í úrvalsliði umferðarinnar.

Að þessu sinni leituðum við til vals Goal.com á úrvalsliðinu en þar má finna marga leikmenn sem eru alls ekki vanir því að vera í liði vikunnar.


Markvörður - Rob Elliot (Newcastle)
Varamarkvörður Newcastle hélt hreinu í fyrsta sinn í úrvalsdeildinni þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn West Ham.

Hægri bakvörður - Nathaniel Clyne (Southampton)

Vinstri bakvörður - Luke Shaw (Southampton)
Ungir bakverðir Southampton fá sæti í liðinu þrátt fyrir naumt tap gegn Tottenham. Tveir þrusuflottir leikmenn.

Miðvörður - Jose Fonte (Southampton)
Eftir flotta frammistöðu þurfti Southampton að játa sig sigrað vegna töfra Gareth Bale.

Miðvörður - Phil Jagielka (Everton)
Jagielka átti stórleik í 0-0 jafnteflinu gegn Liverpool í Merseyside slagnum.

Hægri kantur - Hal Robson-Kanu (Reading)
Fallið lið Reading vann sigur á Fulham þar sem Robson-Kanu færði stuðningsmönnum smá bros með tveimur mörkum.

Miðjumaður - Mikel Arteta (Arsenal)
Baneitruð sending hans í aðdraganda sigurmarksins færir Arteta sæti í liðinu.

Miðjumaður - Juan Mata (Chelsea)
Skoraði eina markið í 1-0 sigri Chelsea gegn Manchester United.

Vinstri kantur - Shaun Maloney (Wigan)
Í fyrsta sinn í Domino\'s liðinu. Wigan vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni.

Sóknarmaður - Callum McManaman (Wigan)
Skoraði mikilvægt mark í 3-2 sigrinum gegn West Brom.

Sóknarmaður - Gabriel Agbonlahor (Aston Villa)
Skaut Villa úr fallhættu með tveimur frábærum mörkum gegn Norwich.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Phil Jagielka.

Phil Jagielka.

Canon

Mynd: Getty Images

Callum McManaman.

Callum McManaman.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.