Liverpool hefur áhuga á Neto - Man Utd fylgist með Inacio - Inter Miami vill fá Modric
   mið 07. júní 2023 11:00
Elvar Geir Magnússon
Liverpool kaupir Mac Allister á 35 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister sé búinn að standast læknisskoðun hjá Liverpool og verið sé að ganga frá pappírsmálum.

Þá segir hann að Liverpool hafi virkjað klásúlu í samningi Mac Allister og kaupverðið sé 35 milljónir punda.

Mac Allister kemur til Liverpool frá Brighton en hann var lykilmaður í argentínska landsliðinu sem vann HM í Katar.

Nú er beðið eftir því að Liverpool staðfesti kaupin á þessum 24 ára leikmanni sem ætti að styrkja miðsvæði liðsins umtalsvert. Liverpool hafnaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og leikur í Evrópudeildinni á næsta tímabili.



Athugasemdir
banner