Fotbolti.net
07.10.13 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Úrvalslið vikunnar í enska - Januzaj stjarna helgarinnar

Adnan Januzaj stal senunni um helgina.

Adnan Januzaj stal senunni um helgina.

Canon

Mynd: Getty Images

Úrvalslið vikunnar í enska boltanum að þessu sinni er sótt frá Goal.com. Aðeins er pláss fyrir ellefu leikmenn í liðinu en tíu bönkuðu á dyrnar góðu.

Ron Vlaar, Mark Noble, Oscar, David Silva, Ahmed El Mohamady, Sergio Aguero, Saido Berahino, Yaya Toure, Pablo Zabaleta og Daniel Sturridge gerðu allir tilkall en eru utan liðs að þessu sinni.


Artur Boruc er í markinu eftir að hafa tekið margar góðar vörslur fyrir Southamptn sem vann Swansea. Í vörninni er Sascha Riether sem var besti leikmaður Fulham í 1-0 sigri gegn Stoke á laugardag. Miðað við frammistöðu hans í byrjun tímabils gætu stærri félög farið að reyna að kroppa í hann.

Í hjarta varnarinnar er Curtis Davies sem átti flotta frammistöðu fyrir Hull City Tigers gegn Aston Villa. Með honum í vörninni er Winston Reid sem var klettur í öftustu línu West Ham sem vann magnaðan 3-0 sigur gegn Tottenham.

Jose Enrique heldur áfram að spila vel fyrir Liverpool. Hann setti upp tvö fyrstu mörkin gegn Crystal Palace og var traustur varnarlega. Það er ekki hægt að fara fram á meira frá bakverði.

Á þriggja manna miðju eru Jordan Henderson hjá Liverpool, Victor Wanyama sem var maður leiksins hjá Southampton gegn Swansea og hinn 18 ára Adan Januzaj. Sá síðastnefndi er stjarna helgarinnar eftir tvö mörk í 2-1 sigri gegn Sunderland.

Fyrir aftan fremstu menn er Ravel Morrison sem átti magnaða einstaklingsframmistöðu í sigri Hamrana á White Hart Lane. Luis Suarez og Loic Remy eru svo fremstu menn en Remy skoraði tvívegis í sigri Newcastl gegn Cardiff City.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Jordan Henderson er í liðinu.

Jordan Henderson er í liðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.