„Ákveðnar ákvarðanir þarna sem ég skil ekki"

Valur fagnar marki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þjálfarateymi Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur spilar í Lengjudeildinni næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik Vals og Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur átti mjög erfitt sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur fagnar marki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur er fallið úr Bestu deild kvenna í fyrsta sinn eftir mjög erfitt sumar.
„Það er ekki tekið á ákveðnum hlutum og það er ekki stígið nægilega harkalega inn í glugganum og fengnir inn fleiri leikmenn til að halda liðinu uppi. Ég skil alveg að það sé verið að breyta um stefnu og draga úr hvað er verið að setja mikinn pening í meistaraflokkana, ég skil það ágætlega en að leyfa sér að fara alla þessa leið."
Geta ekki falið sig á bak við neitt
Reynslumiklir leikmenn hafa horfið á brott frá Val upp á síðkastið og það hjálpaði ekki fyrir liðið að Berglind Rós Ágústsdóttir og Anna Rakel Pétursdóttir misstu af tímabilinu þar sem þær eiga von á barni.
„Auðvitað eru þetta frábærir leikmenn og hefðu gefið hópnum ótrúlega mikið, en þetta gerist og þess vegna kemur mér svo á óvart að það hafi ekki verið stígið meira inn í," sagði Arnar.
„Þær geta ekki falið sig á bak við neitt. Mér fannst Malla (fyrirliði Vals) kjarna þetta vel í viðtali eftir leik. Engar afsakanir. Þetta viðtal vekur klárlega upp spurningar."
„Ég var að þjálfa í Val þegar Pétur Péturs var að þjálfa þær og þær verða Íslandsmeistarar. Standardinn var þvílíkur. Þar var fólki mjög annt um kvennaboltann í Val. Pétur Péturs leiddi þá vinnu og var ekkert eðlilega agressívur á það að tryggja að Valur væri eitt af bestu liðunum. Maður sárnar að sjá hvað er auðvelt að sturta þessu niður á einu tímabili. Að þetta sé niðurstaðan og að Valur leyfi þessu að gerast er ótrúlegt," sagði Arnar.
Öskrar á mann að þetta hafi verið vanhugsað
Það er athyglisvert að í karlaliði Vals var Hermann Hreiðarsson rekinn í lok júní þegar Valur sat í fimmta sæti Bestu deildarinnar. Matthías Guðmundsson fékk að þjálfa kvennaliðið þrátt fyrir að liðið væri í fallsæti nánast allt tímabilið.
„Mér finnst magnað að það hafi ekki verið gerð þjálfarabreyting. Það er gerð þjálfarabreyting hjá körlunum þegar þeir eru um miðja deild," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.
Mögulega var ráðist of hratt í allar þessar breytingar hjá Val, það var tekin algjör U-beygja.
„Það öskrar á mann að þetta hafi verið svo vanhugsað. Hemma Hreiðars er hent undir rútuna... Það var væntanlega hugmyndin kvennamegin að Berglind, Anna Rakel, Lillý og Malla ættu að vera fjórir leikmenn sem væru eldri. En um leið og tvær þeirra eru ekki með, þá þarf að gera eitthvað. Þú getur ekki haldið þig við sem þú ætlar að gera," sagði Arnar.
„Maður getur velt sér fyrir með þjálfarana hvort þeir séu réttu mennirnir í þetta eða ekki. Augljósa svarið er nei þegar þú fellur. Allt tímabilið er búið að vera bras. Að mínu mati er ekki alltaf rétt ákvörðun að láta þjálfarana fara. Ég þekki það ágætlega sjálfur og ég hef fallið sjálfur þar sem ég er aðstoðarþjálfari og kem inn í aðstæður sem eru mjög erfiðar. Svo eru þetta fullt af hlutum sem eru að gerast á bak við tjöldin og maður veit aldrei alla söguna. Maður saknar þess núna að þegar Valur fellur að maður er ekki búinn að sjá neitt. Maður er búinn að heyra milljón sögur og það er enn fáránlega mikil óvissa um hvað Valur á að vera," bætti hann við.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.

Fyrirliði Vals eftir fallið: Tókst ekki að búa til liðs eða æfinga kúltúr sem skilaði árangri

Þjálfarateymi Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur spilar í Lengjudeildinni næsta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr leik Vals og Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur átti mjög erfitt sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá Hlíðarenda.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
